<object classid="clsid:D27CDB6E-AE6D-11cf-96B8-444553540000" codebase="http://download.macromedia.com/pub/shockwave/cabs/flash/swflash.cab#version=6,0,29,0" width="400" height="225"><param name="movie" value="http://vimeo.com/moogaloop.swf?clip_id=9020156&server=vimeo.com&show_title=1&show_byline=0&show_portrait=0&color=ffffff&fullscreen=1" /><param name="quality" value="high" /><param name="menu" value="false" /><param name="wmode" value="transparent" /><embed src="http://vimeo.com/moogaloop.swf?clip_id=9020156&server=vimeo.com&show_title=1&show_byline=0&show_portrait=0&color=ffffff&fullscreen=1" wmode="transparent" quality="high" menu="false" pluginspage="http://www.macromedia.com/go/getflashplayer" type="application/x-shockwave-flash" width="400" height="225"></embed></object>
Stikla fyrir íslenska kvikmynd - Borgríki
------ Menntamálaráðherra:
Heil og sæl Katrín,
Veit að þú ert upptekinn, hef þetta því stutt og skýrt. Þetta varðar
kvikmyndagerð og niðurskurð á henni.
Ég er með tvær spurningar og þætti vænt um ef þú gætir svarað þeim svo
ég og aðrir kvikmyndagerðarmenn skilji hversvegna á að ganga frá
okkur.
1) Það er ekkert mál að það sé skorið niður í kvikmyndagerð eins og
öðrum greinum á þessum tímum. Hinsvegar svíður all svakalega undan
skurði þínum á Kvikmyndasjóð sem af algjörlega óskiljanlegum ástæðum
var mun drýgri en í öðrum menningargreinum. Mér þætti vænt um að fá
skýringar á því. Hvers vegna Kvikmyndagerð var sérstaklega tekin fyrir
í þessari menningarfórn.
2) Hvernig í ósköpunum stendur á því að RÚV er hætt að kaupa íslenskar
kvikmyndir. Hvernig stendur á því að RÚV geti lýst slíku yfir. Þetta
kemur upp um algjöra vanþekkingu þeirra sem að þessu máli standa. RÚV
hefur eytt einungis í kringum 60 milljónum árlega í kaup á
heimildamyndum og kvikmyndum. Kaupverð á kvikmyndum hefur verið
þolanlegt, kaupverð á heimildamyndum fyrir neðan allar hellur. Þessa
litla upphæð, 60 milljónir, hefur þó auðnað kvikmyndagerðarmönnum að
sækja um í erlenda sjóði eins og Media, Eurimages, að ekki sé minnst á
Norræna kvikmyndasjóðinn sem hefur það sem skilyrði að selt sé til
Ríkissjónvarps.
Með miklum niðurskurði á sjóðnum er nánast búið að ganga frá
Kvikmyndagerð um sinn í þessu landi. Með yfirlýsingu RÚV um að kaupa
ekki íslenskar kvikmyndir er endanlega búið að drepa greinina.
Þetta þýðir að ef ég eða aðrir ætlum að gera kvikmynd án styrks frá
Kvikmyndasjóð þá er það ómögulegt þegar RÚV er líka úr leik, því RÚV
er hliðarvörður af ýmisskonar fjármögnunar-möguleikum.
Svo ég orði það mjúklega, þetta verður að laga hið all-snarasta.
Bestu kveðjur yfir,
Olaf de Fleur
www.poppoli.com
------ Páll Magnússon:
Sæll Páll,
Ég get skilð að þú sért í erfiðri aðstöðu varðandi niðurskurð á RÚV,
geri hinsvegar athugasemd við há-alvarlega villu í ákvörðun þinni
varðandi að kaupa ekki íslenskar kvikmyndir.
Hvernig stendur á því að RÚV geti lýst slíku yfir. Þetta kemur upp um
algjöra vanþekkingu þeirra sem að þessu máli standa. Hvar er
menningarhlutverkið statt í þessari jöfnu.
RÚV hefur eytt einungis í kringum 60 milljónum árlega í kaup á
heimildamyndum og kvikmyndum. Kaupverð á kvikmyndum hefur verið
þolanlegt, kaupverð á heimildamyndum fyrir neðan allar hellur. Þessa
litla heildarupphæð, 60 milljónir, hefur þó auðnað
kvikmyndagerðarmönnum að sækja um í erlenda sjóði eins og Media,
Eurimages, að ekki sé minnst á Norræna kvikmyndasjóðinn sem hefur það
sem skilyrði að selt sé til Ríkissjónvarps.
Með miklum niðurskurði á Kvikmyndasjóði er nánast búið að ganga frá
Kvikmyndagerð um sinn í þessu landi. Með yfirlýsingu RÚV um að kaupa
ekki íslenskar kvikmyndir er endanlega búið að drepa greinina.
Þetta þýðir að ef ég eða aðrir ætlum að gera kvikmynd án styrks frá
Kvikmyndasjóð þá er það ómögulegt þegar RÚV er líka úr leik, því RÚV
er hliðarvörður af ýmisskonar fjármögnunar-möguleikum.
Þessa yfirlýsingu verður að draga tilbaka sem fyrst, því þetta
einfaldlega gengur alls ekki. Ástandið hefur oft verið brösótt í
samvinnu RÚV og kvikmyndagerðarmanna, en þarna er farið all svaklega
yfir strikið.
Það er svo einfalt, að kvikmyndagerðarmenn lifa ekki án RÚV. Þó
upphæðir séu mjög misgóðar, þá drepur þetta okkur endanlega að hafa
ekki samstarf við ríkisstöðina.
Vona innilega að þetta verði skoðað án tafar og lagað.
Bestu kveðjur yfir,
Olaf de Fleur
www.poppoli.com
Fékk að sjá klipp af myndinni þegar ég gerði þennan trailer. Myndin er mjög sterk, í miklu og góðu jafnvægi og fellur ekki í neinar gildrur hvað varðar dómfellingar - efnið er sett fram á þroskaðan hátt þar sem áhorfenda er sett í að túlka.
Helgi Felixson leikstýrir, afar prúður maður þar á ferð, Steffi Thors klippir listavel, Hilmar Örn er með tónlistina ... margir margir fleiri koma þarna að. Tek fram að ég er ekkert tengdur framleiðslu myndarinnar. Svo er það hann Ísleifur hjá Græna Ljósinu sem kynnir og dreifir undir Senu.
Í stuttu máli sagt er myndin sterkt milliuppgjör á þessa tíma sem standa enn of nálægt okkur til að sjá þá skýrt, myndin hjálpar í þessu milliástandi sem ríkir.
Það er komin framleiðslutími á ný, æfingar, búningar, myndavélar og önnur vopn fyrir næstu mynd eru á smíðaverkstæðinu. Myndin ber vinnuheitið "Laxdæla Lárusar".
Framleiðsla okkar varð fyrir miklum skakkaföllum í síðustu viku. Þar sem Harpa Arnardóttir er kona, var ætlunin að greiða henni lægra en körlum eins og venja er. Þetta breyttist snögglega þegar hún fékk Grímuverðlaun og setti þar með fjárhagsáætlun í skástöðu. Mikið kapp verður lagt á að draga úr mikilvægi Grímuverðlauna á næstu æfingum til að ná niður fékostum.
Ég hef fengið að sjá myndina þar sem ég klippti trailerinn, ég tengist verkinu ekki á neinn annan hátt.
Verkið hafði mjög mikil áhrif á mig, sem er nokk óvenjulegt þar sem ég hef litla meðvitund um þessi mál og er almennt frekar upptekinn af sjálfum mér.
Afar sterkt verk og ein besta heimildamynd sem gerð hefur verið á þessu landi, setur sig á stall með Hlemm og Lalla Johns en er samt allt öðruvísi og einstök í heimildasögu þessa lands - til hamingju til aðstandenda.
Segi kurteislega, skellið ykkur í bíó þegar hún kemur :)
Einhversstaðar í LA. Hátíð fyrir Stóra Planið.
Ferðafélagi Stefan Schaefer. Mikið af ótrúlega góðum bröndurum sem of fáir heyra.
Mikið af fundum, mikið af peningum hérna. Mikið af framtíðardraumum sem deyja. Viðreynsla við það að fá húsið með sundlauginni sem verður bara notuð einu sinni.
Hitti Irving, hann er smámæltur, ætlar að gera mynd um hversu mikið hann varð fyrir einelti í skóla. Talar um hversu mikið hann þarf ekki að heilsa fallegum stelpum, því annars koma þær ekki til hans. Má ekki segja að þær séu fallegar, virkar ekki að hans mati. Brjóstumkennanlegur drengur sem lífið hefur klofsparkað aðeins of oft.
Gloria, kynnti okkur fyrir slatta af liði hjá risafyrirtæki, mikið af ást, á LA mælikvarða. Endurgerð á Stóra Planinu, mikið talað og malað. Var á Íslandi, fín stúlka.
Vaknað í morgunleikfimi í herberginu. 25 stig. Fundir. Kvikmyndahátíðir eru góðar fyrir sálina, ekki einn að stræva heldur allir. Afslöppun, gegnumsýn á tilgangsleysið í tilganginum.
Santa Monica, ströndin og parísarhjólið. Ofaní, frískandi.
Á Roosevelt hótelinu þar sem Marlyn var.
Er að fara út til New York og LA á smá rúnt.  Verður gaman að komast aðeins úr snjónum í stuttbuxur og á ströndina í LA. Ætla í sjósund eins og margir hér heima eru að reyna drepa sig með. Sjósund í LA er hollara er líklegra til að halda lífi.
Mun hitta eitthvað af liði þarna og fylgjast með Stóra Planinu fara á sínu fyrstu kvikmyndhátíð á AFI Film Festival á kvikmyndaborginni. Fyrirtæki vill endurgera myndina á bandarískri grund. Því er tekið með hæfilegum fyrirvara. Það verður mikið blaðrað, drukkið te á við capuccino og reynt að sitja í rónni og njóta sólarinnar.
Finnst fátt skemmtilegra en að hitta fólk og tala um ekki neitt. Þó umræðuefnin sé með ýmsum stærfræði formerkjum er það sjaldnast það sem maður er að tala um. Það virðast vera ávallt að aðalsamskiptin fari fram í einhverju öðru formi, ósýnileg. Síðast kom Ásgrímur Sverrisson í heimsókn á hjólinu sínu, þykir vænt um Ása, hann skammar mig alltaf kurtleislega og er ávallt hæfilega ánægður og óánægður með mín störf, samt á bakvið erum við ekkert að tala um kvikmyndaverk, heldur skiptast á einhverju ósýnilegu í hversdeginum.
Hitti svo Ara Alexander um daginn, þar kepptumst við í yfirborðs-þunglyndi en meintum ekkert með því.
Þarf svo ofsalega að finna diskinn sem kór Frímúrarareglunnar gaf út fyrir um tíu árum að mig minnir. Þar eru fegurstu hljómar jarðarinnar. Ekki hægt að finna þetta í búðum.
Fallegur dagur og merkilegur af mörgum ástæðum og þá aðallega einni. :)
Það eru mikilvægir hlutir í lífinu, svo eru ómikilvægir og líklega eitthvað grátt svæði þarna á milli. Ástin er oft talin til mikilvægu hliðarinnar, eflaust út af einhverjum annarlegum ástæðum samfélagsins. Á milli þess sem maður les Halldór Laxness við rauðvínsglas í penthouse íbúðinni minni hérna við Skúlagötu þá hlusta ég á sannkallaða fagurtónlist.
Hérna er eitt slíkt, sem fjallar um gervi-greindarveruna Önnu, og drenginn blíða sem er orðinn ástfanginn af henni á spjallrás. Afar nútímalegt ljóð sem með góðan boðskap, því jú, viti menn, Anna er alvöru sænsk ljóshærð stúlka.
Af þessu má sjá hversu ógurlega upptekinn ég er þessa dagana.
Frumsýning loksins á Queen Raquela. Fínt að vera búin að þessu. Kvöldið tókst nokkuð vel. Að minnsta kosti sannfærir maður sig um það. Það skemmtilegasta við að frumsýna er maður fær tilefni til að hitta fólk úr fortíðinni, gamla góða vini og fjölskyldu.
Átti langt og gott spjall við góðan mann í morgun til að hefja daginn. Hann Ásgrímur Sverrisson spekúlat las mér ákveðna tölu um íslenskt samfélag þar sem ég er að fara gera mynd að hluta til um það. Merkilegt hvað maður er lítt kunnugur sögunni. Fékk góða skólun í morgungjöf.
Hitti hund sem er ellefu ára, eða sjötíu og sjö ára í mannaldri. Hann var furðu unglegur að sjá. Aðspurður kvaðst eigandinn halda að það væri skírlífi hundsins að þakka.
Það er gaman að fylgjast með gróðrinum í Reykjavíkurborg í göngutúrum, náttúrunni virðist alveg sama þó hér séu læti vegna fjármuna. Lætin eru fín afþreying frá enska boltanum eða borgarmálum um strætóleiðir, flugvöll eða hreinsun andarskíts úr Reykjavíkurtjörn.
Er að leika mér í að gera glataða tónlist í einhverju lágmannsforriti, þarf að finna mér kærustu sem ég get sagt upp með því að nota afsökunin "ég þarf að einbeita mér að tónlistinni minni".
Í dag opnar "Queen Raquela" í USA. Miðað við að um 90% kvikmynda fá ekki bíódreifingu þá er ótrúlegt hvað þessi litla mynd hefur teigt úr sér.
Hérna er yfirlit yfir gagnrýni, hún er á twist og bast, ýmist mjög góð eða misjöfn. Það sem helst flækist fyrir fólki er að notuð er tænki heimildamyndar við að gera leikna mynd. Sumir þola það ekki, aðrir eru hrifnir eins og gengur og gerist. Eins og þroskaður einstaklingur hef ég einungis tekið saman það jákvæða.
"The Amazing Truth About Queen Raquela," opens in New York (Quad Cinemas), Los Angeles (Regent Showcase La Brea), Columbus, Ohio (Drexel East) and Palm Springs (cinemas Palme d'Or) theatres Friday 26th September.
LA Times review by Kevin Thomas.
“What's amazing is how Icelandic filmmaker Olaf de Fleur Johannesson managed to start out making a faux documentary on Filipina transsexual Raquela Rios and then turn it into a poignant narrative with The Amazing Truth About Queen Raquela."
latimes.com/entertainment/la-et-capsules26-2008sep26,0,487634.story
Hollywood Reporter review by Stephen Farber.
“Bottom Line: A fascinating, nonjudgmental portrait of Philippine ladyboys.”
hollywoodreporter.com/hr/film/reviews/article_display.jsp?&rid=11678
EdgeLosAngeles.com by Michael Diamond.
“It is a fascinating hybrid much like Raquela herself, who is a young "ladyboy," aka a transsexual.”
edgelosangeles.com/index.php?ch=entertainment&sc=movies&sc2=&sc3=features&id=80299
Frontier Publishing:
The Amazing Truth About Queen Raquela
Starring Raquela Rios, Olivia Galudo, Brax Villa
Unrated, 80 mins - ***1/2 (of 4 stars)
AfterElton.com
“A unique little film opens this week in NYC and LA that is definitely worth checking out if you're in either city and are looking for a reprieve from the junk cramming the multiplexes lately.”
afterelton.com/blog/brianjuergens/out-at-the-movies-amazing-truth-about-queen-raquela-choke-towelhead
Campus Circle
“Olaf de Fleur Johannesson’s Queen Raquela employs a creative near-documentary style to explore the world of the Filipino ladyboy with compassion and objectivity.”
campuscircle.com/review.cfm?r=6874
LA City Beat review by Annlee Ellingson.
“Documentarian Olaf de Fleur Johannesson films this fairy tale in cinema verite style, shaping narrative elements around the real-life Raquela. This aesthetic lends the production authenticity – one senses that the events could be, and are, happening somewhere.”
lacitybeat.com/cms/story/detail/latest_reviews_september_25_october_1_2008/7540/
The Onion review by Noel Murray
“Icelandic documentarian Olaf de Fleur openly blends fact and fiction in The Amazing Truth About Queen Raquela , the partially true story of the Filipino transsexual Raquela Rios...”
IFCFilmNews.com
“Offering up the most unlikely fairytale you're ever likely to see, Icelandic filmmaker Olaf de Fleur Johannesson draws on his documentary background with this endearing low-budget, semi-improvised Cinderella story.”
ifc.com/film/film-news
Bakitwhy
Ignoring rules of expectation, director Olaf de Fleur brings us his award-winning independent film which can only be categorized, as he calls it, a "visionmentary."
http://www.bakitwhy.com/2008/09/queen-raquela.html
Jæja, kominn úr fríi. Fór langt í burtu á ný en er kominn aftur, einhvern veginn virðist sem öllum hafi verið alveg sama.
Nú sé ég að ég get hætt í kvikmyndagerð. Queen Raquela er kominn á Quicktime.com og það þýðir að markmiðinu er náð. Ég hef alltaf jarmað um að eina takmarkið væri að komast þangað með mynd.
Nú er bara að velta fyrir sér hvað ég geti tekið mér fyrir hendur, þar sem ég er hættur í þessu kvikmyndabrölti. Gæti hugsað mér að sjá um að þrífa klósett í miðbænum og vera í núinu.
:) snúllur yfir
Mættur aftur á klakann. Fínt að vera kominn úr hitanum í rigninguna. Búin að heimasækja ömmu og mömmu. Get þá farið að snúa mér að því að gera ekki neitt aftur.
Lítið Blómatal hérna. Queen Raquela verður frumsýnd þann 10. október næstkomandi hjá Sambíóunum og í the QUAD í New York þann 26. september. Si.
Nú er hinsvegar fjandinn aftur laus. Tælendingar vilja losna við bráðabirgðarstjórnina sem tók við herstjórninni í fyrra sem henti Thaksin í burtu fyrir tveim árum. Mikil mótmæli hafa farið fram undanfarnar vikur hérna niðri í bæ og það sauð uppúr í gær, einn lét lífið þegar með- og mótfylkingar mættust við þinghúsið voru m.a. að skjóta á hvor aðra.
Svo núna er herinn aftur kominn á stjá og forsætisráðherran Samak Sundaravej er búin er að lýsa yfir "State of Emergency", sem m.a. þýðir að það meiga ekki fleiri en fimm mótmæla saman í einu. Og fjölmiðlar sem hvetja til fjöldamótmæla má ritskoða.
Og í dag eru verkföll um allt land farin í gang til að hvetja stjórnina til að segja af sér. Búið er að loka á síma og rafmagn til þinghússins. Það ganga aðeins 800 strætóar í dag (um 20% af flotanum) í Bangkok. Thai airways ætlar líka að fara í verkfall, sem verður gaman, því ég á að fljúga með þeim í kvöld.
Það er PAD (People's Alliance for Democracy) og UDD (United Front of Democracy Against Dictatorship) sem eru að berjast. PAD vilja semsagt fá Samak í burtu, en UDD er að verja hann. Þessar tvær fylkingar eru að berja á hvor annarri hér niðri bæ. PAD hefur fengið 43 verkalýðsfélög til að fara í verkfall og klárt að "fólkið" stendur með PAD. Það hjálpar ekki að Kóngurinn er veikur þessa dagana og heldur lasburða til að fara að blessa hitt eða þetta.
Kóngurinn hefur gríðarleg völd hérna. Hann segir nánast aldrei neitt en þegar hann talar þá hlusta allir og hlýða. Þegar maður fer í kvikmyndhús, þá birtist tveggja mínútna mynd um Kónginn undir þjóðsöngnum, allir standa upp, þar sést hann ferðast um landið, með gleraugu að skrifa í bók, hinn hugsandi, sívinnandi maður fyrir hagsmuni Tælands.
Fór
að reyna að sofa klukkan ellefu, datt ekki í draumalandið, fór aftur á
lappir klukkan þrjú í nótt, skyndilega var klukkan orðin sex. Þannig að
ég ákvað bara að skella mér út að taka myndir. Var á röltinu í 35 stiga
hita í fimm klukkutíma, nær dauða en lífi.
Ég var svo vankaður
og ruglaður í hausnum að það rann af mér öll feimni, veittist hreinlega
að fólki, náhvítur svefnlaus ruglaður íslendingur með myndavél og
stillti liðinu upp með kurteisi fyrir framan vélina. Mér finnst það
aldrei almennilega takast að taka myndir af fólki í laumi.
Hérna er hægt að sjá myndirnar.