12.4.2007 | 22:29
Stóra Planið vika 2
Önnur vika af tökum í Stóra Planinu á enda. Held þetta sé þolanlegt allt saman, ekki viss, á eftir að sjá hvernig þetta klippist allt saman. Hvað um það, þetta er bara enn ein bíómyndin. Þarf ekkert sérstaklega að babla um hvað fólk stendur sig vel. Mikilvægast er að koma liðinu heim fyrir fimm. Hef sett af stað svokallaða Poppoli vinnuvernd, sbr. Landsbanka launavernd. En á meðan Landsbankinn er upptekinn af því að þykjast passa peningana, þá leggur Poppoli ehf áherlsu á að passa vinnutíma og geðheilsu starfsmanna. Allir fara heim tiltölulega ferskir og mæta happí daginn eftir. Þannig leggur Poppoli áherslu á ... blah blah, farin að hljóma eins og auglýsing en þetta er akkúrat málið. Við deyjum eftir skamman tíma (þetta flýtur ógurhratt hjá), og því er mikilvægt að passa vel upp á heilsuna og nota orku og athygli í sem bestu jafnvægi til ferðaloka. Hvað um það, ætla að hoppa í bólið góða. Knúserí, óli j.
Athugasemdir
Ekki lgar alltaf í eins og síldin í sjóarann.
Jón Steinar Ragnarsson, 12.4.2007 kl. 22:44
Kvikmyndagerd tekur svo sannarlega á og gott ad sjá menn sem vinna ekki 24/, heldur getad notad aukaorkuna í sköpun
Ragnar Trausti Ragnarsson, 13.4.2007 kl. 09:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.