30.5.2007 | 15:08
Tökum lokið
Aðaltökum er lokið á kvikmyndinni Stóra Planið. Þetta hefur verið átakalítill tími, aðallega bara skemmtilegur, óvenjulegur stuttur listi yfir bræðisköst starfsfólks. Er lítið þreyttur eftir tökurnar, enda vara bara unnið 9-5 svona mestmengis, auðvelt lipurt og létt.
Er byrjaður að klippa þetta saman og þetta lítur prýðilega út. Það lítur út fyrir að þetta verði tvær myndir. Ekki einatt tókum við upp efnið sem var í hinu svokallaða handriti heldur bætti undirritaður fjöldamörgum senum við handritið.
Ætli það sé ekki vegna þess að ég kem úr heimildamyndum, er vanur því að raunveruleikinn sé aðgengilegur myndavélinni úr hvaða átt sem er.
Við förum í enn einar aukatökur á verkinu um miðjan júní, ég læt mér ekki segjast, ætla að taka upp slatta í viðbót uns ég er kominn með allt efnið sem ég vil fá í hús.
Ælta að fara í sund. Si, Grande.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.