Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Addóli

sveitaroHér má sjá ungan bónda að störfum skammt frá Vígholtsstöðum í Dalasýslu. Ég eyddi stórum hluta æsku minnar á þessum stað með Sigurði frænda mínum, sem tók þessa mynd af drengnum sínum röltandi um túnin í gleymdri sveita ró. Bið að heilsa Sigurbirni og Melkorku.

Kieslowski og simpsons

Þetta er merkilegur húmor. Alltaf gaman að sjá eitthvað öðruvísi og ferskt. Þessar fígúrur eru öðruvísi. Hérna mætast Simpsons, Family Guy í litum Kieslowski:

Lokalagið fyrir Queen Raquela

l_5a8212842ab2a521c9bbd52a6f858f8fÞá er þetta að smella. Búið að finna lokalagið fyrir Queen Raquela. Það er hann Karl Henry, eða Kalli eins og hann kallar sig sem flytur. Lagið er hægt að heyra hér og heitir "Bridges Burn". Talar fyrir sig sjálft um gæði. Drengurinn er hið mesta gæðablóð, henti einnig saman nokkrum gítarslögum sem eru í myndinni á "no time". Vissi ekkert hver þetta var fyrr en ungfrú K.A. framleiðandinn minn fann hann á netinu.

Si grande

Hef þetta á ítölsku svo allir skilji:

Ho deciso di non di consentire i commenti su questa pagina - credo che commento sono semplicemente la maniera peggiore sprecare il tempo di tutti nell'internet. E rifiuto di permettersi in quel comportamento più. O forse questo è soltanto temporaneo.  Invio l'amore fuori a tutti e alla gentilezza di amare. Avere un grande giorno!


Zhuyi

h_force Svona stafsetur maður víst "Higher Force", eða, tja Stóra Planið á kínversku. Tók þó nokkurn tíma að láta gera þetta. Endaði með því að piltur í Bangkok var sendur þar í Chinatown til að láta útbúa þetta fyrir okkur. Látið vita ef þið sjáið stafssetningarvillu.


Ljósið

 Fallegt.

"Our deepest fear is not that we are inadequate. Our deepest fear is that we are powerful beyond measure. It is our light, not our darkness, that most frightens us. We ask ourselves, who am I to be brilliant, gorgeous, talented, fabulous? Actually, who are you not to be? You are a child of God; your playing small doesn't serve the world. There is nothing enlightened about shrinking so that other people won't feel insecure around you. We were born to make manifest the glory of God that is within us. It's not just in some of us; it's in everyone. And as we let our light shine, we unconsciously give other people permission to do the same. As we are liberated from our own fear, our presence automatically liberates others." NELSON MANDELA, 1994


Soundtrack Queen Raquela

Jæja, eftir gríðarlega vinnu. Loksins komið fullgilt soundtrack fyrir Queen Raquela. Þarna leggja margir hönd á plóg. Heil 23 lög. Tónlistin skiptir mig mestu máli, það er þaðan sem ég fæ allar hugmyndirnar. Njótið vel.

Stoltur strákur

selfportrait-1Einhver hluti af mér er stoltur í dag. Annar hluti segir að slíkt sé ekki kurteis hegðun og bendir á fallvaltleika heimsins. Því held ég mér í tilgerðarlegu jafnvægi.

Hinsvegar er ástæða til, myndin Queen Raquela fór í hina "ultimate" skoðun á Filippseyjum.

Þar voru ekki skoðanasamir kvikmyndaáhugamenn á ferð heldur þeir sem skipta mestu máli. Stelpustrákarnir á Filippseyjum.

Ég get alveg deilt því með ykkur að þær eru ekkert grín að díla við, þessar transfeminísku stúlkur.

Forstöðumenn réttindahóps stelpustráka glápti á myndina í vikunni og umsögn þeirra er hægt að lesa hér.

Ég tel því óhætt að loka verkinu og fara að ganga frá. Verkið hefur staðist a.m.k. mínar væntingar.

Ljósmyndin er af stúlkunni sem ritar umsögnina.


Cebu er "inn" í dag

Queen Raquela er að koma til Filippseyja. Heilmikið buzz í gangi.

Einn helsti tískubloggari landsins, þ.e. Filippseyja telur að Cebu (jú, einmitt á Filippseyjum) sé "heitasti" staðurinn að vera á í Ágúst. Nefndur bloggari nefnir hin þegar-frægu fanga-dans-myndbönd sem einmitt eru tekin upp í fangelsi í borginni.

Sem og, myndina hjá Poppoli Queen Raquela sem var tekin í Cebu. Sjá bloggið hér. 


Næsta síða »

Höfundur

Ólaf de Fleur Jóhannesson
Ólaf de Fleur Jóhannesson
El chico con cámara

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband