14.7.2008 | 23:48
Zee Waves
Á hverjum morgni dreg ég sjálfan mig niður á strönd. Þetta er eins og að vera fangi í eigin póstkorti. Bara af því að ströndin er þarna þá verður maður að fara. Það er stórkostlegt, þegar maður á annað borð er kominn ofaní að veltast um í öldunum. Og ávallt jafn tómlegt þegar maður þarf að fara heim svo maður brenni ekki í þúsund mola hérna í sólinni. Venst því samt seint þegar köld aldan snertir líffærið, hversu fljótt það skreppur saman.
Lífið og allar misteríurnar.
Lífið og allar misteríurnar.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Hafðu það gott vinur
Segðu mér að þú sért að fara á Dark Knight í IMAX fyrst þú ert þarna úti
Ómar Ingi, 15.7.2008 kl. 01:02
Dark Knight í Imax - ertu eitthvað crazy, ég fer ekki á litlar arthouse myndir. Á eftir að sjá Sex in zee city ja. :)
Ólaf de Fleur Jóhannesson, 18.7.2008 kl. 06:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.